Ég legg til að á næsta ári verði alþjóðlegur sápuóperumánuður haldinn. Þar munu sápuóperur frá öllum heimshornum verða sýndar í sjónvarpinu stóran hluta sólarhringsins í mánuð. Eftir hvern þátt verður umræðuþáttur þar sem þátturinn verður ræddur, pælt í söguþræði og hvað muni gerast í framhaldinu. Í lok hvers dags verður svo sýnt stutt myndband þar sem hápunktar dagsins verða sýndir í slowmotion. Þessi sápuóperumánuður verður svo haldinn á fjögurra ára fresti.
Einnig legg ég til að haldinn verði evrópskur sápuóperumánuður á fjögurra ára fresti þar sem nákvæmlega sama mun gerast nema bara evrópskar sápuóperur verða sýndar.
Þannig mun alltaf vera sápuóperumánuður annað hvert ár.

0 Athugasemdir:
Sendu inn athugasemd
Allur dónaskapur bannaður!!
<< Heim