COOLNESS

The truth is in between the 1st and the 40th drink!

þriðjudagur, apríl 13, 2010

Í dag gerðist sá merki atburður að ég og Guðrún Lilja urðum sammála. Hingað til höfum við verið ósammála um allt, en nú hafa komið upp nokkur mál sem við erum sammála um.
Nefnd er komin í málið og mun gefa út skýrslu um þennan atburð og aðdraganda hans. Stefnt er að því að skýrslan komi út í haust, eigi seinna en 15. september.

4 Athugasemdir:

Þann þriðjudagur, apríl 13, 2010 9:42:00 PM, sagði Anonymous Nafnlaus...

Já - sama ár og Fimmvörðuháls kaus. Þetta er sögulegt ár! Sérfræðingar sáu þetta engan veginn fyrir og velta nú fyrir sér hve langt mun líða þar til þetta gerist aftur...
gl

 
Þann þriðjudagur, apríl 13, 2010 10:28:00 PM, sagði Blogger Þóra Lísa...

OMG!! Hvað kaus hann?

 
Þann miðvikudagur, apríl 14, 2010 12:10:00 AM, sagði Anonymous Nafnlaus...

Bezta flokkinn, að sjálfsögðu.

Sumir halda að Fimmvörðuháls sé í raun listamannsnafn Geira Goldfinger þegar hann stígur á svið klæddur g-streng og nælonsokk yfir hausinn einum fata. En ég get upplýst að svo er ekki, hið sanna er að Geiri kallar sig Stinningskalda þegar hann dansar.

Ég hef orðið við beiðni Fimmvörðuhálss um að afhjúpa ekki hans sanna nafn í bloggkommentum. Bara hvað hann kýs.
gl

 
Þann miðvikudagur, apríl 14, 2010 10:49:00 PM, sagði Blogger Þóra Lísa...

Oh þetta kallar á aðra skýrslu.

 

Sendu inn athugasemd

Allur dónaskapur bannaður!!

<< Heim