Börnin í MH reykja alveg rosalega mikið. Þau standa í frímínútum hér á gangstéttinni, svæla í sig reyknum og henda svo stubbunum í götuna. Það er voðalega leiðinlegt að horfa upp á þetta.
Ef helmingurinn af þessu liði yrði veikt þá myndi það leggjast inn á Barnaspítala Hringsins. Mér finnst alveg fáránlega steikt að leggjast inn á Barnaspítala Hringsins með nokkur pakkaár á bakinu.

